Af hverju að gerast sæðisgjafi?

Ástæður fyrir því að vilja gerast sæðisgjafi eru margar. Flestir menn gera það vegna þess að þeir vilja hjálpa pörum og einhleypum konum að eignast barn. Þú þekkir kannski sjálfur einhvern sem hefur átt erfitt með að eignast barn. Kannski langar þér til að aðstoða aðra við að öðlast það sem þeir þrá heitast. Það er einstök gjöf að gefa öðrum möguleika til að eignast barn, sem þeir gætu ekki sjálfir án aðstoðar.

Einn af kostum við að gerast sæðisgjafi er að þú færð ókeypis ítarlega heilsufarsskoðun og upplýsingar um eigin frjósemi. Þú færð einnig þóknun fyrir hverja samþykkta sæðisgjöf. Þóknuninni er ætlað að bæta þér tímann sem þú verð í að mæta til okkar.