Aðferðir við frjóvgun

Tvær mismunandi frjóvgunaraðferðir eru notaðar við glasameðferð.

Hefðbundin glasafrjóvgun (In Vitro Fertilization – IVF) er gerð ef sæðissýnið uppfyllir skilyrði um fjölda sáðfrumna og hreyfanleika.

Smásjárfrjóvgun (Intracytoplasmic Sperm Injection – ICSI) er hinsvegar notuð ef sæðissýnið uppfyllir ekki þessi skilyrði eða ef frjóvgun fyrri meðferða er ekki ásættanleg.

 

Hefðbundin glasafrjóvgun

Nokkrum klukkustundum eftir eggheimtu er frjóvgun framkvæmd þar sem fyrirfram ákveðnu magni af sáðfrumum er blandað við eggin.  Sáðfrumurnar sjá þá sjálfar um að frjóvga eggið. Ræktunarskálin er síðan sett inn í hitaskáp yfir nótt og frjóvgun skoðuð daginn eftir.

Smásjárfrjóvgun

Við smásjárfrjóvgun er frjóvgað undir smásjá með því að koma einni sáðfrumu fyrir inni í egginu.  Áður en smásjárfrjóvgun er gerð þarf að hreinsa næringafrumur utan af egginu með hárfínum pípettum og ensími sem leysir upp bandvef sem heldur svokölluðum cumulusfrumunum saman. Eftir hreinsun er eggjunum komið fyrir í ræktunarskál með litlum ætisdropum sem eru umluktir olíu.  Gert er brot á halann á einni sáðfrumu, við það virkjast ferli sem gerir henni kleift að frjóvga eggið. Fruman er veidd upp í hárfína pípettu sem er stungið inn í eggið. Ræktunarskálin er svo sett inn í hitaskáp yfir nótt og frjóvgun skoðuð daginn eftir.