Fyrir hverju er skimað? – Heilsufarsskýrslan og blóðsýnatakan

Það er mjög mikilvægt að allir gjafar séu við góða heilsu. Þess vegna skimum við alla gjafa okkar mjög vel áður en gjöf er samþykkt. Þessi skimun fer bæði fram með viðtölum, smitsjúkdómaprófum, erfðafræðilegri rannsókn og almennri læknisskoðun.

Blóðsýni er rannsakað með hliðsjón af:

  • HIV I/II
  • HTLV I/II
  • Lifrarbólga B
  • Lifrarbólga C
  • Sárasótt
  • Klamydía
  • Lekandi

Erfðafræðileg skimun:

  • Ættgengt dvergkornablóðleysi (thalassamia)
  • Heilkenni brotajárns X (Fragile X)
  • Slímseigjusjúkdómur (Cystic Fibrosis)
  • SMA-sjúkdómur
  • Arfgengt heyrnarleysi (GJB)
  • Litningagreining

Um það bil sex mánuðum eftir fyrstu blóðprufuna er tekið nýtt smitsjúkdómapróf (HIV, HLTV, lifrarbólga B og C, og sárasótt). Á meðan eru eggin og/eða fósturvísar sem orðið hafa til frá eggjum geymd í sóttkví til að tryggja að smitaðar eggfrumur/kynfrumur verði ekki notaðar. Um leið og niðurstöður prófa og skimana liggja fyrir og tryggt er að ekkert smit sé til staðar eru eggin/fósturvísar gerðir aðgengilegir til þega og þú færð þóknun fyrir gjöfina.