Það geta verið margar ástæður fyrir því að vilja gerast sæðisgjafi.
Flestir karlmenn gera það vegna þess að þeir vilja hjálpa pörum og einhleypum konum að eignast barn. Þú þekkir kannski sjálfur einhvern sem hefur átt erfitt með að eignast barn. Kannski langar þig til að aðstoða aðra við að öðlast það sem þeir þrá heitast. Það er einstök gjöf að gefa öðrum möguleika til að eignast barn sem þeir gætu ekki án aðstoðar.