Sæðisrannsókn
Við mat á ófrjósemi þarf alltaf að gera sæðisrannsókn. Prufan er skoðuð m.t.t. fjölda frumna og hreyfanleika þeirra.
Bóka þarf tíma fyrirfram í síma 430-4000.
Mikilvægt er að huga að eftirfarandi þegar sýnið er tekið:
- Æskilegt er að þegar sýnið er búið til séu tveir sólarhringar frá síðasta sáðláti.
- Það er mikilvægt að viðhafa hreinlæti þegar sýnið er tekið. Liminn skal þvo með sápu og vatni daginn áður en bara með vatni sama dag.
- Sýni skal skilað í þvagprufudós sem hægt er að kaupa í apóteki.
- Sýnið má ekki vera eldra en klukkutíma gamalt og gott er að halda því volgu á leiðinni. Hægt er að búa til sýnið á staðnum fyrir þá sem það þurfa.
- Merkja þarf sýnaglasið með nafni og kennitölu, fylla út spurningalista og sýna gild skilríki þegar sýninu er skilað.
- Niðurstaða rannsóknarinnar er send á tilvísandi lækni.
Undir eyðublöð hér á síðunni má nálgast leiðbeiningar og eyðublað fyrir skil á sæðissýni.