Litningarannsókn án inngrips (NIPT)

Livio býður upp á litningarannsókn án inngrips (NIPT: Non-invasive prenatal testing) frá 10. viku meðgöngu.

Prófið er fósturgreiningarpróf og segir til um líkur á litningafrávikum fósturs. Tekin er blóðprufa úr móður og því engin aukin áhætta fyrir fóstrið.

Skoðaðir eru litningar 13, 18 og 21 ásamt kynlitningum. Ef í ljós kemur litningafrávik er vísað áfram á Lanspítala þar sem frekari greining og ráðgjöf fer fram.

Blóðsýnin eru send á erfðafræðirannsóknastofu á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og niðurstöður fást innan 10 virkra daga.