Meðferðir

Þegar einstaklingur eða par hefur reynt að eignast barn í eitt ár eða meira án þess að þungun hafi orðið fellur það undir skilgreininguna á ófrjósemi. Einn af hverjum sex er í þessum sporum einhvern tíman. Skýring ófrjósemi getur legið hjá konunni, manninum, báðum einstaklingum, verið óútskýrð eða vegna félagslegrar stöðu.

Skýringar á ófrjósemi kvenna geta t.d. verið:

  • lokaðir eggjaleiðarar
  • legslímuflakk
  • egglosvandamál

Skýringar á ófrjósemi karlmanna geta t.d. verið:

  • lækkuð sæðistala
  • lokaðar sáðrásir
  • hormónatruflanir
  • ónæmisfræðilegir þættir (mótefni gegn eigin sáðfrumum)

Aldur ásamt áhrifum lífsstíls svo sem yfirvikt, undirvikt, stress, reykingar og áfengi hafa líka áhrif. Stundum finnast ekki ástæður ófrjóseminnar og er þá talað um óútskýrða ófrjósemi.

Okkar hlutverk er að greina ástæðu ófrjósemi og bjóða upp á einstaklingsmiðaða meðferð.