Að þiggja egg
Eggjagjöf hentar ákveðnum hópi para og einstaklinga sem eiga við ófrjósemi að stríða því hún gefur þeim möguleikan á að ganga með og eignast barn.
Þær konur sem þurfa eggjagjöf eru:
- Konur sem misst hafa eggjastokka á yngri árum, t.d. vegna krabbameins eða skurðaðgerða.
- Konur sem hafa farið á breytingaskeið fyrir 40 ára aldur, en það getur átt sér stað hjá um 1% kvenna.
- Konur sem hafa alvarlega arfgenga sjúkdóma þar sem hætta er talin á að móðir beri sjúkdóm yfir í barn.
- Konur með eggjastokka sem svara ekki lyfjameðferð í glasagrjóvgun
- Konur sem hafa gengist undir margar árangurslausar glasafrjóvganir.
- Konur sem eru orðnar eldri en 43 ára.
Eggjagjöf getur annað hvort verið nafnlaus eða undir nafni og ráða þá óskir bæði eggjagjafa og eggþega.